FAQ/Um okkur
-Algengar spurningar-
Þarf ég að koma með dansfélaga?
Nei, ekki er nauðsynlegt að koma með dansfélaga. Í pardanstímum er reglulega skipt um dansfélaga þannig að allir fá tækifæri til að dansa.
Má ég koma ef ég er ekki í háskóla?
Já. Aðalmarkhópur félagsins eru háskólanemar en Háskóladansinn er opinn öllum sem vilja taka þátt.
Veitir annargjaldið aðgang að einum dansi eða öllum dönsunum?
Annargjaldið veitir aðgang að öllum dönsunum.
Ég hef aldrei dansað áður, get ég samt tekið þátt?
Já, ekki spurning! Í Háskóladansinum eru bæði kenndir byrjenda- og framhaldstímar og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi!
Þarf ég sérstaka skó eða fatnað?
Nei, en æskilegt er að vera í léttum klæðnaði sem auðvelt er að hreyfa sig í og þægilegum íþróttaskóm eða léttum flatbotna skóm.
Tekur þetta ekki of mikinn tíma fyrir námsmann?
Hver og einn ræður auðvitað hversu miklu hún/hann tekur þátt í en tímarnir okkar eru um ein og hálf klukkustund hver. Maður fær mikla og skemmtilega hreyfingu sem dugar vel í staðinn fyrir ræktina!
-Um okkur-
Háskóladansinn er dansfélag fyrir háskólanema. Við gerum okkur grein fyrir því að stúdentar eru ekki fjársterkir svo allt er gert til að halda inngöngugjaldi í lágmarki. Enginn fær greitt fyrir störf sín í þágu félagsins og allir peningar sem aflast eru notaðir í starf og uppbyggingu samtakanna. 5.000 kr. annargjald veitir aðgang að öllum dönsunum sem Háskóladansinn býður upp á en það eru Boogie Woogie, Hip Hop, Salsa, Swing & Rock’n'Roll. Lindy Hop og Contemporary.
Háskóladansinn er líka kjörinn staður til að kynnast nýju fólki, á sunnudagskvöldum er opið danskvöld fyrir swingdansana á Sólon og á mánudagskvöldum fyrir salsa í Hugmyndahúsinu. Fyrir nánari upplýsingar lítið á Danskvöldasíðuna okkar.
Kennitala félagsins er 480208-0720 og aðsetur þess Asparhvarf 17 c, 203 Kópavogur.
Lög félagsins má finna hér.