Contemporary

Nútímadans er fjölbreitt og opið dansform. Beita má mismunandi aðferðum við iðkun nútímadans en margir frumkvöðlar hans þróuðu sína eigin tækni sem hefur verið nefnd eftir þeim. Má þar nefna hinn nýlátna Merce Cunningham og Cunningham tæknina, José Limón og Limón tæknina og síðast en ekki síst Martha Graham og Graham tæknina. Tæknin sem þetta fólk kenndi var kölluð Modern tækni því á þeim tíma var hún svo ólík því sem áður tíðkaðist í klassískum ballet og leikhúsi.
Á síðustu árum hefur nútímadans brugðið út af þessari tækni og komið hefur fram samtímadans sem kallast Contemporary og er náttúruleg þróun dansins frá gömlu nútímadanstækninni. Dansinn er (yfirleitt) orðinn mýkri og meira flæðandi og reynt er að ná sem mestu fram með sem minnstri áreynslu (Release tækni).
Háskóladansinn mun bjóða upp á blöndu af nútímadansi og samtímadansi og taka áhrif frá gömlu frumkvöðlunum ásamt því að bjóða upp á ferska strauma frá þungamiðju samtímadansins í Evrópu. Lögð verður áhersla á liðleika, styrk og líkamsvitund. Tilvalið fyrir þá sem vilja krefjandi og skemmtilega danstíma!