Bachata

Bachata er gítartónlist sem er upprunnin í Dóminíska lýðveldinu, náskyld bolero. Þessi tónlist var lengi litin hornauga í heimalandinu enda einkum spiluð í fátækrahverfum og á fremur vafasömum stöðum. Hún hefur þó þróast mjög í tímans rás, ekki síst í New York þar sem flestar af þekktustu hljómsveitunum starfa nú til dags.

Dansinn hefur sömuleiðis þróast mikið, sér í lagi í Bandaríkjunum og Evrópu, þar sem hann hefur orðið fyrir áhrifum af salsa og tangó. Ólíkt salsa er grunnsporið í bachata ekki dansað fram og aftur heldur til hliðar og gjarnan með miklum mjaðmahreyfingum. Hnén eru því ávalt bogin en bakið þó beint. Líkt og í tangó er bachata oft dansað mjög þétt og er dansinn þá gjarnan skreyttur með hvers kyns dýfum. Í sýningum er þetta oft tekið miklu lengra og jafnvel farið út í hálfgerða loftfimleika.

Segja má að eitt ákveðið lag hafi komið bachata á heimskortið, lagið Obsession með hljómsveitinni Aventura. Lag þetta var gefið út árið 2002 og skapaði hljómsveitinni heimsfrægð á augabragði. Margar sveitir fylgdu í kjölfarið með svipaðan stíl og síðasta áratug hefur tónlistin orðið fyrir áhrifum frá R&B og jafnvel rappi. Dansinn hefur einnig átt sívaxandi vinsældum að fagna og eru nú árlega haldin fjölmörg bachatadansmót um öll Bandaríkin og Evrópu. Segja má að heimalandið, Dóminíska lýðveldið, hafi verið seinast að taka við sér því þar var slíkt mót haldið í fyrsta sinn árið 2011..

Dæmi um dansinn má sjá hér