
Tangó er pardans, þar sem áhersla er lögð á tenginguna við dansfélagann, tónlistina og umhverfið. Kjarni dansins er samskipti án orða þ.e.a.s. sá sem leiðir túlkar tónlistina, stingur upp á leið til að tjá tónlistina til þess sem fylgir. Sá sem fylgir verður að fylgjast vel með og að vera tilbúinn að svara skilaboðum þess sem leiðir.
Við kennum “félagstangó” þar sem áherslan er inn á við, að ná sterku sambandi milli þeirra sem eru að dansa. Áherslan er ekki út á við eins og í “sýningartangó” þar sem stórar og flóknar hreyfingar skipta máli. Takmark byrjendatímana er að kenna nemendunum næga tækni til að þeir hafi sjálfstraust til að fara á tangó danskvöldin og að njóta þessa að tengjast dansfélaga sínum án orða.
