Í haust býður Háskóladansinn uppá 11 missmunandi námskeið í 6 missmunandi dönsum.
- BOOGIE WOOGIE: byrjenda, framhalds og keppnis&sýningar(c/s)*
- SALSA: byrjenda og framhalds
- SWING&ROCK’N'ROLL: byrjenda og framhalds
- LINDY HOP: byrjenda og framhalds
- CONTEMPORARY
- HIP HOP
Námskeiðin hefjast 6. september og fyrstu tvær vikurnar verða ókeypis kynningartímar.
- Önnin kostar einungis 5.000- kr. fyrir háskólanema og 7.000- kr. fyrir aðra. Veitir það inngöngu í alla dansana.
- Hægt er að skrá sig hér og greiðsluupplýsingar má finna hér.
- Stundaskrána og hvar námskeiðin fara fram má finna hér.
- Ekki þarf að mæta með danfélaga og enginn fyrri danskunátta skilyrði.
*NÝTT: Í haust bjóðum við í fyrsta skipti uppá þriðja stigið í Boogie Woogie, BW keppnis&sýningar (C/S). Nauðsynlegt er að hafa lokið a.m.k. einu byrjendanámskeiði og einu framhaldsnámskeiði í Boogie Woogie til að mæta í BW C/S. Í BW C/S er skilyrði að mæta með dansfélaga, ekki þarf þó að mæta með sama félagann í hvern einasta tíma. Í þessum tímum verður kafað dýpra í tækni atriði dansins sem og æfð flóknari skref meðal annars stökk og köst.
