Inntökuprufur í Spiral Dansflokkinn 2010/2011

Spiral dansflokkurinn hefur verið starfræktur frá árinu 2006 og sett
upp fjölda verka sem vakið hafa verðskuldaða athygli.

Spiral dansflokkurinn leitar eftir að fá flotta, skapandi og áhugasama
dansara/sviðlistamenn til liðs við flokkinn starfsárið 2010/2011.
Leitað er að einstaklingum með ólíkan bakgrunn og þjálfun í dansi með
áherslu á styrkleika hvers og eins. Dansflokkurinn leggur metnað sinn
í að halda úti öflugu starfi með krefjandi æfingum og listrænni vinnu.
Á hverri önn er flokkurinn í samstarfi við þekkta danshöfunda þar sem
dansarar fá tækifæri til að þróa færni sína og taka þátt í tilurð
verka með áherslu á dansleikhús og danssmíði.

Inntökuprufur fyrir Spiral dansflokkinn verða haldnar í
Borgarleikhúsinu þann 29. ágúst, 2010 kl.10:00.

Sótt er um á heimasíðu flokksins – www.spiral.is – þar sem finna má
umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um flokkinn. Einnig er ykkur
velkomið að senda fyrirspurnir á unnur@spiral.is eða
gianluca@spiral.is