Boogie Woogie helgarnámskeið með erlendum leiðbeinendum

13. og 14. mars næstkomandi verður sérstakt helgarnámskeið í Boogie Woogie með þeim Anitu Elvedal & Magnus Andre Myrvold frá Noregi.

Þau hafa verið að keppa í Boogie Woogie undanfarinn ár, meðal annars á
heimsmeistara- og evrópumeistaramótum með góðum árangri.

Námskeiðið verður haldið í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti, Jarðhæð. (við hliðiná Versló – gamla HR)

Tvö námskeið verða í boði, byrjenda og framhalds.
(Þeir sem fara í framhalds eru hvattir til að taka einnig byrjenda enda eru oft kennd mörg ný og skemmtileg spor þar líka)

DAGSKRÁ:
- Laugardagur;
Byrjendanámskeið kl. 13:00-14.30
Framhaldsnámskeið kl. 14.45-16.15
- Sunnudagur;
Byrjendanámskeið kl. 14:00-15.30
Framhaldsnámskeið kl. 15.45-17.15

VERÐSKRÁ:
3.000 kr. fyrir félagsmenn. (5.000- fyrir bæði byrjenda og framhalds)
5.000 kr. fyrir þá sem eru ekki félagsmenn. (6.500- fyrir bæði byrjenda og framhalds)

Við tökum aðeins við peningum og greiðsla fer fram á staðnum!

Hér má sjá myndbönd með þeim að dansa frá Noregsmeistarakeppninni 2009 þar sem þau lentu í 3. sæti
http://www.youtube.com/watch?v=3e8EIKWOmBY
http://www.youtube.com/watch?v=sSlku0h11XQ&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=h5yvfPX8Wtk&feature=related