Aðalfundur Háskóladansins
Aðalfundur Háskóladansins verður haldinn sunnudaginn 28. febrúar í húsnæði Háskólans í Reykjavík, Ofanleiti 2, kl. 16.00 í stofu 201.
Dagskrá aðalfundar:
- Fundarsetning.
- Kosnir fundarstjóri og fundarritari.
- Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Lagabreytingar ef fyrir liggja.
- Kosin 5 manna stjórn.
- Önnur mál.
- Fundarslit.
Allir meðlimir Háskóladansins mega sitja aðalfund.
Framboð til stjórnar og kosning fer fram á staðnum.