Skráning opin fyrir vorönn 2010

Skráning er nú hafin fyrir vorönn 2010 sem hefst 11. janúar. Stundaskrá og staðsetningar tíma má finna hér.

Á vorönn býður Háskóladansinn upp á byrjendanámskeið í Hip Hop, Contemporary, Boogie Woogie, Swing & Rock’n'Roll, Salsa og Lindy Hop.

Einnig verða framhaldsnámskeið í boði í Contemporary, Boogie Woogie, Swing & Rock’n'Roll, Salsa og Lindy Hop.

Annargjald er 5.000 kr. fyrir háskólanema og 7.000 kr. fyrir aðra og gildir það í alla dansa.

ATH – breyting á stundaskrá

Á mánudögum hefst Hip Hop kl. 19.30 en ekki kl. 19.00.

Byrjendanámskeið í Contemporary hefst kl. 20.45.

Framhaldsnámskeið í Contemporary hefst kl. 22.00.