WCS námskeið

Mánudaginn 28. og þriðjudaginn 29. desember mun Háskóladansinn vera með sitt fimmta námskeið í West Coast Swing (WCS) í íþróttahúsi Menntaskólans í Reykjavík. WCS er nútímalegur pardans sem er dansaður við popptónlist og blús, og breiðist nú hratt um Evrópu. Í boði verður bæði byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið (fyrir þá sem hafa mætt á WCS áður).
Á þriðjudagskvöldinu verður svo WCS danskvöld á Oliver frá klukkan 20:30 til 22:30 og við verðum með tilboð á barnum!

Dagskrá:
- Mánudagur 28.
16.15-17.30 – byrjenda
17.30-18.45 – framhalds
- Þriðjudagur 29.
16.15-17.30 – byrjenda
17.30-18.45 – framhalds
20.30-22.30 – danskvöld á Oliver

Verð:
Eitt námskeið (byrjenda eða framhalds):
1.500 kr. fyrir félagsmenn
2.500 kr. fyrir aðra
Bæði námskeið:
2.000 kr. fyrir félagsmenn
3.000 kr. fyrir aðra