Lokahóf Háskóladansins!

Lokahóf Háskóladansins verður haldið sunnudaginn 17. maí í Iðnó. Húsið verður opnað kl. 20:00 og við dönsum fram á nótt! Hljómsveit Jóhanns Þorleikssonar leikur salsa- og swingtónlist fyrir dansi. Danspar Íslands 2008 verður með sýningu í latín-dönsunum og boogie woogie framhalds hópurinn sýnir Austin Powers rútínuna sem er orðin heimsfræg á Fésbókinni.

Haldin verður . . . → Read More: Lokahóf Háskóladansins!

Matur fyrir danskvöld

Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði verður matur á Sólon einum og hálfum tíma fyrir swingdanskvöld (þ.e. 20:00 núna og í sumar). Þetta er tilvalið tækifæri til að borða í góðra vina hópi og svo er ekki verra að við fáum afslátt af matnum. Fyrsti sunnudagur maímánaðar er víst liðinn svo við borðum saman í . . . → Read More: Matur fyrir danskvöld

Síða með lagalistum

Eftir að hafa fengið allmargar fyrirspurnir um nöfn á dansvænum lögum og góðum hljómsveitum höfum við sett upp síðuna Lagalistar sem þið getið valið hér á vinstri hliðarreininni. Búið er að setja inn lista fyrir salsa og swing & rock’n’roll, fljótlega verður bætt við lista fyrir boogie woogie.