Lokahóf Háskóladansins verður haldið sunnudaginn 17. maí í Iðnó. Húsið verður opnað kl. 20:00 og við dönsum fram á nótt! Hljómsveit Jóhanns Þorleikssonar leikur salsa- og swingtónlist fyrir dansi. Danspar Íslands 2008 verður með sýningu í latín-dönsunum og boogie woogie framhalds hópurinn sýnir Austin Powers rútínuna sem er orðin heimsfræg á Fésbókinni.
Haldin verður Jack’n'Jill keppni í swing (hvers konar swing sem er, það er jafnvel hægt að skipta á milli dansa). Í stuttu máli fer Jack’n'Jill keppni þannig fram að herra og dama eru pöruð saman handahófskennt. Þetta er gert nokkrum sinnum og dansararnir eru dæmdir sem einstaklingar. Í lokaumferðinni eru dansararnir dæmdir sem par. Glæsileg verðlaun eru veitt fyrir fyrsta sætið! Ólánsamir geta drekkt sorgum sínum á barnum. Þetta er til gamans gert og við hvetjum alla til að skrá sig! Hægt er að skrá sig nú þegar á hrafnkell.palsson[hja]haskoladansinn.is eða á lokahófinu.
Aðgangseyrir er litlar 1.500 kr.
Sjáumst vonandi öll og ljúkum önninni með pompi og prakt!
