Matur fyrir danskvöld

Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði verður matur á Sólon einum og hálfum tíma fyrir swingdanskvöld (þ.e. 20:00 núna og í sumar). Þetta er tilvalið tækifæri til að borða í góðra vina hópi og svo er ekki verra að við fáum afslátt af matnum.
Fyrsti sunnudagur maímánaðar er víst liðinn svo við borðum saman í fyrsta skiptið núna á sunnudaginn, 10. maí. En eftir það verður það sem sagt fyrsta sunnudag hvers mánaðar.

Sömuleiðis verður matur á Sólon einu sinni í mánuði fyrir salsakvöld. Hvaða fimmtudag í mánuðinum það verður og hvenær verður borðað í fyrsta skipti kemur í ljós fljótlega.