Lok námskeiða

Hip hop er lokið. Lyrical, salsa, swing & rock’n'roll og boogie woogie byrjenda lýkur í þessari viku. Boogie woogie framhalds lýkur í næstu viku.

Ekki er öll nótt úti enn því glæsilegt lokahóf verður haldið í Iðnó 17. maí, ráðgert er að hafa helgarnámskeið í bæði west coast swing og kast- og lyftutækni snemma í sumar og danskvöldin halda áfram í allt sumar.
Enn er óljóst hvort við verðum með stórt sumarnámskeið með erlendum leiðbeinendum eins og í fyrra.