The Opening
Spiral dansflokkurinn (sem er í samstarfi við Háskóladansinn, aðallega með því að kenna Lyrical) mun dagana 27. og 29. mars setja upp verk í Sundhöll Reykjavíkur. Verkið heitir The Opening og er dansleikhúsverk sem endurspeglar ólík tjáningarform, tónlist, dans og gjörning. Verkið yfirtekur og fyllir bygginguna með mögnuðu andrúmslofti sem skapar dulúð, töfra og brjálæði.
Listamaðurinn Andreas Constantinou vill að áhorfendur endurupplifi sína barnslegu eftirvæntingu, kanni slóðir hins óþekkta og upplifi huglæga ævintýraferð. Í The Opening fá áhorfendur frelsi og svigrúm til þess að reika um Sundhöllina og fylgja hvaða þema eða flytjanda sem er, eða þá flétta saman ólíkum leiðum eftir eigin höfði. Eða einfaldlega njóta þess að ganga um bygginguna og soga í sig andrúmsloftið sem er hlaðið töfrum hinnar líðandi stundar listsköpunarinnar.
Miðasala á midi.is