Helgarnámskeið í Boogie Woogie með erlendum leiðbeinendum

Helgarnámskeið í Boogie Woogie laugardaginn 21. mars og sunnudaginn 22. mars með norsku leiðbeinendunum Petter Nodeland og Kirsti Stengrundet. Námskeið fyrir létt æfða kl. 13-15 og framhaldsnámskeið kl. 15-17. Eitt námskeið kostar 3.000 kr. og bæði kosta 5.000 kr.  Námskeiðið er haldið í Laugardalshöll, inngangur F. Námskeiðsgjöld greiðast á staðnum og einungis er hægt að greiða með peningum.
Petter og Kirsti eru virkt keppnisfólk og hafa m.a. keppt til úrslita á heimsmeistaramóti.