Salsa danskvöld

Háskóladansinn heldur salsa dansleik á Club 101, Hafnarstæti, á fimmtudagskvöldið kemur, 12. febrúar og hefst kl. 20.30. Hvetjum alla til að mæta! Stefnan er að halda salsa danskvöld í hverri viku ef vel gengur.

Hönnunarkeppni um lógó

Háskóladansinn vantar lógó og því hefur verið efnt til hönnunarkeppni. Vinsamlegast sendið tillögur að lógói á haskoladansinn[hja]haskoladansinn.is á einhverju algengu sniði fyrir myndir. Tekið er við tillögum fram til 1. apríl og í verðlaun er 20.000 kr. gjafabréf í Kringluna. Háskóladansinn áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum. Vonumst eftir mörgum frjóum hugmyndum!

West Coast Swing helgarnámskeið!

Helgarnámskeið í West Coast Swing (WCS) verður haldið í Laugardalshöll (inngangur F) helgina 7.-8. febrúar. Námskeiðið er frá 13-15 bæði á laugardag og sunnudag og kostar 1.000 kr. Námskeiðið er opið öllum þeim sem hafa lokið byrjendanámskeiði í boogie woogie (eða einhverju tilsvarandi, svo sem lindy hop eða jive).

WCS er úr fjölskyldu swing-dansa . . . → Read More: West Coast Swing helgarnámskeið!