West Coast Swing helgarnámskeið!

Helgarnámskeið í West Coast Swing (WCS) verður haldið í Laugardalshöll (inngangur F) helgina 7.-8. febrúar. Námskeiðið er frá 13-15 bæði á laugardag og sunnudag og kostar 1.000 kr. Námskeiðið er opið öllum þeim sem hafa lokið byrjendanámskeiði í boogie woogie (eða einhverju tilsvarandi, svo sem lindy hop eða jive).

WCS er úr fjölskyldu swing-dansa en er ólíkur öðrum dönsum úr þeirri fjölskyldu að því leyti að hann er oft dansaður við nútímatónlist, t.d. R’n'B og popp. Það eru til fjöldamörg myndbönd á YouTube af WCS dönsurum, m.a. þetta myndband.