Erlendir leiðbeinendur í Boogie Woogie

Eftir mánuð, helgina 21.-22. mars, verða norskir leiðbeinendur í Boogie Woogie með námskeið. Þau heita Kirsti Stengrundet og Petter Nodeland og eru stöðugt í einu af efstu þremur sætunum þegar þau keppa í Noregi og hafa keppt til úrslita á heimsmeistaramóti. Nánari upplýsingar koma síðar. Takið helgina frá!

Salsa danskvöld í hverri viku

Salsa danskvöld verða haldin á Club 101, Hafnarstæti, öll fimmtudagskvöld og hefjast kl. 20.30. Hvetjum alla til að mæta!

Swingball með lifandi tónlist

Föstudaginn 20. feb. verður opið swingball (fyrir hvers konar swing dansa) á Óliver með lifandi tónlist! Hljómsveitin byrjar kl. 22 og seinna um kvöldið tekur plötusnúður við með dansvæna tónlist.