Skráning opin

Búið er að opna fyrir skráningu! Skoðið stundaskrána til að sjá hvaða dansa boðið eru upp á og hvenær þeir eru kenndir. Hérna getið þið skráð ykkur á vorönnina og svo borgað hér. Nú bjóðum við upp á tvo nýja dansa, Salsa og Lyrical!

Fyrir einungis 5.000 kr. fær maður aðgang að öllum námskeiðunum alla önnina! Fyrstu tvær vikurnar eru fríir prufutímar í öllum dönsum. Námskeið Háskóladansins eru þannig uppbyggð að ekki þarf að mæta með dansfélaga. Kennsla hefst 19. janúar.

Stundataflan er líka endanlega ákveðin. Athugið að vegna kennaraeklu verður einungis kennt framhaldsnámskeið þessa önnina í Swing & Rock’n’Roll (hugsað fyrir nemendur sem voru á byrjendanámskeiði í haust).