Póstlistar

Við höfum sett upp póstlistaskráningu hér á síðunni og getur fólk því skráð sig á póstlista og fengið tölvupóst frá okkur þegar eitthvað er um að vera. Um er að ræða póstlista fyrir hvern dans og einnig sósíal póstlista en þar verða sendar út almennar fréttir og tilkynningar. Hægt er að skrá sig á fleiri en einn póstlista. Einnig er hægt að skrá sig af póstlista ef ekki er óskað eftir því að vera lengur á listanum með því að smella á tengil sem er í póstunum sem eru sendir út á viðkomandi póstlista.

Þeir sem hafa verið að fá póst frá okkur þurfa ekki að skrá sig á sósíal póstlistann þar sem þeir eru þar nú þegar. Ef þið hafið ekki fengið póst þá endilega skráið ykkur á þann lista og á lista í þeim dönsum sem þið iðkið til að fá upplýsingar um ykkar dansa.

Til þess að skrá sig á póstlistana veljið Póstlistar hér til hliðar og skráið netfang ykkar í viðeigandi reit. Mögulegt er að staðfestingarpóstur sem sendur er til ykkar lendi í ruslpóstsíu ykkar, en þessi póstur er nauðsynlegur til að klára skráninguna og til að útiloka að netföng sem ekki eiga heima á listanum rati þangað.