Helgarnámskeið í Swing & Rock’n'Roll

Helgarnámskeið í Swing & Rock’n'Roll með norskum leiðbeinendum verður haldið dagana 8. til 9. nóvember. Námskeiðið hefst kl. 14 og stendur til kl. 16 báða dagana og verður haldið í Danshöll Komið og dansið, Drafnarfelli 2. Opnað hefur verið fyrir skráningu hér til hliðar og einnig er hægt að smella hér. Eins og áður er verðinu haldið í lágmarki og kostar aðeins 2000 kr. á námskeiðið. Námskeiðið hentar einkar vel fyrir þá sem hafa sótt byrjendanámskeið hjá Háskóladansinum.

Einnig verður haldið námskeið fyrir lengra komna og hefst það kl. 11.30 báða dagana.