Námskeið Háskóladansins byrja snemma í september. Í vetur aukum við við okkur, í haust bætist Hip Hop og Swing & Rock’n'Roll við og í vor Salsa!
Á haustönn verður byrjenda- og framhaldsnámskeið í Boogie Woogie og byrjendanámskeið í Hip Hop og Swing & Rock’n'Roll.
Borgað er eitt annargjald sem veitir aðgang að öllum dönsunum. Fyrir háskólanema er það 5.000 kr. en fyrir aðra 7.000 kr.
Skráning á vefsíðunnni verður opnuð fljótlega og dagskrá kemur eins fljótt og auðið er.
Hlökkum til að sjá ykkur í vetur!
