Síður

Tenglar

Archive for August, 2008

Stundaskrá komin

Friday, August 29th, 2008

Þá er stundaskráin komin! Allir dansarnir hefjast í vikunni sem byrjar 8. september og þá er frítt inn á öll námskeið.
Athugið að nú erum við ekki eingöngu í íþróttahúsi Háskóla Íslands þótt við höldum okkur mjög miðsvæðis.
Munið að ekki þarf að mæta með dansfélaga!

Skráning hafin

Friday, August 22nd, 2008

Þá er skráning hafin fyrir haustönn 2008. Um er að ræða byrjenda- og framhaldsnámskeið í Boogie Woogie og byrjendanámskeið í Hip Hop og Swing & Rock’n’Roll. Allt þetta kostar aðeins 5000 kr. fyrir háskólanema og 7000 kr. fyrir aðra. Smellið hér til að skrá ykkur eða veljið Skráning hér til hliðar.

Dagskrá komandi vetrar

Friday, August 15th, 2008

Námskeið Háskóladansins byrja snemma í september. Í vetur aukum við við okkur, í haust bætist Hip Hop og Swing & Rock’n’Roll við og í vor Salsa!
Á haustönn verður byrjenda- og framhaldsnámskeið í Boogie Woogie og byrjendanámskeið í Hip Hop og Swing & Rock’n’Roll.
Borgað er eitt annargjald sem veitir aðgang að öllum dönsunum. Fyrir háskólanema er [...]

Danskvöld á danskvöld ofan!

Saturday, August 9th, 2008

Það verður danskvöld á Sólon núna þriðjudaginn 5. ágúst. Hefst klukkan 20:30 eins og vanalega. Um að gera að byrja að gíra sig upp fyrir æðisgengilegan dansvetur!

Switch to our mobile site